fbpx
Mánudagur, nóvember 25, 2024
target="_blank"
HeimFréttirBrettafjör í snjónum á Víðistaðatúni - MYNDIR

Brettafjör í snjónum á Víðistaðatúni – MYNDIR

Tugir barna og unglinga léku listir sýnar á snjóbrettum

Brettafélag Hafnarfjarðar var stofnað árið 2012 en hefur eflst mikið og dafnað síðan. Fyrst var áherslan mest á hjólabretti en fljótlega bættust snjóbrettin við en nú eru peinnig deildir fyrir fjallahjól og BMS hjól.

Iðkendur sem stunda skipulagðar æfingar hjá félaginu eru um 140 talsins á aldrinum 5 til 18 ára, en einnig sækir fjöldi barna og unglinga innanhússaðstöðuna á degi hverjum.

Félagið fékk mjög góða aðstöðu í gömlu slökkvistöðinni við Flatahraun en félagið æfir einnig í Bláfjöllum og víðar þar sem aðstaða er góð hverju sinni.

Í kvöld var stór hópur barna og unglinga á æfingu á Víðistaðatúni en Hafnarfjarðarbær hafði bætt við snjó að brekkunni við Víðistaðakirkju svo hægt var að byggja upp stökkpalla. Var þetta snjór sem kom til við hreinsun á götum og stígum í bænum. Að sögn Jóns Teits, eins þjálfara félagsins voru félagar hæst ánægðir með aðstöðuna og þakklátir Hafnarfjarðarbæ fyrir að koma með snjóinn. Sagði hann mikinn kraft í félaginu um þessar mundir og benti á fjöldann í brekkunni því til staðfestingar.

Þarna æfðu félagarnir hinar ýmsu kúnstir við frumlegar aðstæður en allir hjálpuðust að við að gera hana viðunandi, skóflur voru á lofti og einhver hafði komið á jeppa með öflugum kösturum sem lýsti upp hluta af svæðinu.

Ljósmyndari Fjarðarfrétta var á svæðinu og tók nokkrar myndir af þessum hressu krökkum.
Smelltu á mynd til að sjá þær stærri.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2