Sex manna hópur frá vinabænum Cuxhaven var í síðustu viku í heimsókn hér á landi og þar á meðal Hans-Wilhelm Eitzen, formaður vinabæjarfélagsins í Cuxhaven og Marion Dick, varaformaður, auk Wolfs-Rudiger Dick, heiðurskonsúls Íslands í Cuxhaven.
Á dagskrá heimsóknarinnar var m.a. að gróðursetja 100 trjáplöntur í Vinalundinn við Hvaleyrarvatn, sem gjöf frá vinabæjarfélaginu í Cuxhaven og var gróðursett miðvikudaginn 2. október.
Það var þann 29. sept. árið 1992, í tilefni 40 ára stjórnmálasambands Íslands og Þýskalands, sem fyrstu trén voru gróðursett í Vinalundinn. Þáverandi bæjarstjórar vinabæjanna, þeir Albrecht Harten og Guðmundur Árni Stefánsson plöntuðu fyrstu trjánum í lundinn, sem síðan hefur heldur betur tekið út vöxt og grósku með hverju árinu. Enda vel séð um lundinn fagra og séð til þess að planta nýjum trjám við hvert tækifæri.
Cuxhavenbúarnir og fulltrúar hafnfirska vinafélagsins voru röskir við gróðursetningu og þáðu veitingar í húsakynnum Skógræktarfélags Hafnarfjarðar á eftir.