fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirEinn Íslandsmeistaratitill og tvö silfur til Hróa Hattar

Einn Íslandsmeistaratitill og tvö silfur til Hróa Hattar

Bogfimifélagið Hrói Höttur í Hafnarfirði fékk einn Íslandsmeistaratitil og tvö silfur á Íslandsmóti ungmenna sem haldið var 5. júlí sl. á Ásvöllum.

Mótið var haldið í heimabæ félagsins á Ásvöllum. Veðrið var nokkuð gott fyrri part dags, ekki mikill vindur en varð kaldara eftir því sem leið á daginn og byrjaði að rigna í lokakeppninni.

Auðunn Andri Jóhannesson

Auðunn Andri Jóhannesson varð Íslandsmeistari í U18 berboga karla. Hann setti einnig Íslandsmet í berboga karla U18 á Norðurlandameistaramóti Ungmenna sem haldið var 4. júlí á sama velli þar sem hann lenti í 4. sæti.

Nóam Óli Stefánsson

Nóam Óli Stefánsson fékk silfur í trissuboga karla U18 eftir naumt tap í úrslitum gegn Daníel Baldurssyni úr Skaust á Egilstöðum 115-124.

Georg Elfarsson

Georg Elfarsson fékk silfur í sveigboga karla U21 eftir 0-6 tap í úrslitum gegn Oliver Ormari Ingvarssyni úr BF Boganum í Kópavogi.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2