fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirTíu Oddfellowdeildir styrktu þrenn félagasamtök veglega

Tíu Oddfellowdeildir styrktu þrenn félagasamtök veglega

Styrktu félögin samtals um 2,7 milljónir kr.

Fulltrúar allra regludeilda Oddfellow í Hafnarfirði afhendu nú í kvöld samtökunum Einstökum börnum, Píeta samtökunum og Sorgarmiðstöðinni 900 þúsund kr. styrk hverju.

Það voru þær Guðrún Helga Harðardóttir frá Einstökum börnum, Berglind Jónsdóttir frá Píetasamtökunum og Ína Lóa Sigurðardóttir frá Sorgarmiðstöðinni sem tóku við styrkjunum í kvöld við einfalda athöfn í húsnæði Oddfellowreglunnar við Staðarberg.

Sagði fulltrúi regludeildanna að á þessum fordæmalausu tímum séu erfiðleikar hjá mörgu fólki. Fjárhagsleg og andleg áföll dynja yfir sem aldrei fyrr. Þá sé gott að geta leitað til fagaðila sem t.d. megi finna hjá þeim félögum sem nú fengu styrki.

Í Hafnarfirði eru starfandi tíu regludeildir innan Oddfellowreglunnar á Íslandi I.O.O.F. Eru það fjórar bræðrastúkur, þrjár Rebekkustúkur, tvennar Oddfellowbúðir og einar Rebekkubúðir:

  • Bjarni riddari, stúka nr. 14
  • Snorri goði, stúka nr. 16
  • Þorlákur helgi, stúka nr. 21
  • Gissur hvíti, stúka nr. 23
  • Rannveig, Rebekkustúka nr. 8
  • Barbara, Rebekkustúka nr. 12
  • Elísabet, Rebekkustúka nr. 14
  • Magnús, Oddfellowbúðir nr. 3
  • Sjöstjarnan, Oddfellowbúðir nr. 7
  • Þórunn, Oddfellowstúka nr. 2

Fundahald deildanna hefur legið niðri stóran hluta ársins vegna kórónuveirunnar sem hefur sett allt starf úr skorðum. Til þess að láta gott af sér leiða og styrkja þá sem minna mega sín á þessum erfiðu tímum, var sú ákvörðun tekin af stjórnendum regludeildanna í Hafnarfirði að standa saman að fjárstyrkjunum núna.

Allt starf Oddfellowreglunnar á Íslandi er grundvallað á einkunnarorðunum Vinátta – Kærleikur – Sannleikur og eitt af grunngildum reglunnar er að líkna bágstöddum.

Ína Lóa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Sorgarmiðstöðvar tekur við styrknum.

Sorgarmiðstöð sinnir fræðslu og ráðgjöf til syrgjenda og þeirra sem vinna að velferð þeirra. Sorgarmiðstöð er samstarfsverkefni fjögurra grasrótarfélaga á sviði sorgarúrvinnslu. Þau eru Ný dögun stuðningur í sorg, Birta landssamtök, Ljónshjarta og Gleym mér ei styrktarfélag. Sorgarúrvinnsla miðar að bættri lýðheilsu með því að efla og styðja við andlega, líkamlega og félagslega heilsu fólks eftir ástvinamissi. Félagið var stofnað 6. nóvember 2018.

Berglind Jónsdóttir, fulltrúi Píeta samtakanna tekur við styrkknum

Píeta samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. Til samtakanna geta leitað einstaklingar og aðstandendur sem vilja fá hjálp og viðtal hjá fagfólki. Kennd eru ýmis bjargráð til að fást við erfiðar tilfinningar ásamt streitu- og tilfinningastjórnun og samskiptafærni. Samtökin opnuðu þjónustu sína vorið 2018.

Guðrún Helga Harðardóttir, framkvæmdastóri Einstakra barna tekur við styrknum.

Einstök börn er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni. Ástæðan fyrir stofnun félagsins var sú að ákveðin börn í samfélaginu áttu ekki heima í neinum öðrum félagasamtökum og töldu þeir foreldrar sem hófu starfsemi Einstakra barna að þar gætu þau fundið sameiginlegan vettvang til að deila reynslu og vinna að bættum hag barna sinna. Félagið var stofnað 13. mars 1997.

Vegna aðstæðnanna var allra sóttvarnareglna gætt og ekki margir viðstaddir athöfnina.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2