Ökumaður jepplings sem var á leið vestur Ásbraut um kl. þrjú í dag missti stjórnar á bifreiðin á móts við Flugvelli og endaði bifreiðin á hvolfi mikið skemmd.

Þarna eru akreinar aðskildar og hefur bifreiðin skollið utan í klett við veginn og oltið. Hefur hann runnið á vinstri hliðinni áður en hann endaði á toppnum.

Að sögn viðbragðsaðila virtist ökumaður bifreiðarinnar lítt meiddur.
Ekki var talið að bifreiðinni hafi verið ekið á ofsa hraða en hámarkshraði þarna er 50 km/klst.