Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Hafnarfirði var í Hafnarborg í gær að viðstöddu fjölmenni, m.a. bæjarstjóra, menntmálaráðherra og forsetafrúnni frú Elizu Reid. En spenntastir fyrir utan keppendurna voru eflaust foreldrar og skyldmenni úti í sal.
Alls kepptu 14 nemendur, 2 frá hverjum skóla og heilluðu þau áheyrendur með fallegum lestri sínum.
- Atli Freyr Björgvinsson, Hvaleyrarskóla
- Ágúst Goði Kjartansson, Öldutúnsskóla
- Birgitta Kristín S. Scheving, Áslandsskóla
- Dagur Logi Sigurðsson, Hvaleyrarskóla
- Elías Óli Hilmarsson, Lækjarskóla
- Embla Guðmundsdóttir, Víðistaðaskóla
- Erla Rúrí Sigurjónsdóttir, Áslandsskóla
- Hafþór Óskar Kristjánsson, Setbergsskóla
- Helena Hauksdóttir, Hraunvallaskóla
- Saga María Michaelsdóttir, Víðistaðaskóla
- Sara Aurora Lúðvíksdóttir, Öldutúnsskóla
- Selma Dögg Guðmundsdóttir, Setbergsskóla
- Sveinbjörg Júlía Kjartansdóttir, Hraunvallaskóla
- Vera Víglundsdóttir, Lækjarskóla
Lásu þau úr skáldsögunni Bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnson, ljóð eftir Steinunni Sigurðardóttur og ljóð að eigin vali.
Það tók dómnefndina langan tíma að komast að niðurstöðu þar sem keppnin var gríðarleg jöfn.
Sigurvegari keppninnar í ár varð Erla Rúrí Sigurjónsdóttir úr Áslandsskóla. Í öðru sæti varð Dagur Logi Hilmarsson úr Hvaleyrarskóla og í þriðja sæti varð Sveinbjörg Júlía Kjartansdóttir úr Lækjarskóla.
Umgjörð keppninnar er glæsileg með glæsilegum leik ungra nemenda Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, flutningi talkórs úr 4. bekk Setbergsskóla auk þess sem Andri Snær Magnason, skáld keppninnar ávarpaði nemendum. Sagðist hann m.a. sakna þess að hafa ekki fengið þjálfun í framkomu eins og þessir glæsilegur krakkra sem tækju þátt í keppninni. Sigurvegarinn frá í fyrra, Anna Vala Guðrúnardóttir kynnti Andra Snæ og Mímir Kristínarson Mixa sem varð í 2. sæti í fyrra kynnti ljóðskáld keppninnar, Steinunni Sigurðardóttur. Þá las Anna Wiktoria Majewska ljóð á pólsku, Hristiyan Kirilov Nikolov las á búlgörsku og Mímir Hrafn Thorlasíus las frumsamið ljóð á íslensku.
Verðlaun í smásagnakeppni
Á degi íslenskrar tungu var hrundið af stað smásagnakeppni í 8.-10. bekk grunnskólanna sem Hafnarfjarðarbær og Samtök móðurmálskennara standa að. Bárust 15 sögur en aðeins þrír skólar tóku þátt. Voru verðlaunin veitt á hátíðinni.
Verðlaunasagan var Jói eftir Kristófer Baldur Sverrisson úr Víðistaðakóla.
Í öðru sæti varð sagan Gítarleikararnir eftir Val Áka Svansson úr Víðistaðskóla.
Í þriðja sæti urðu tvær sögur jafnar, Dagur í lífi hans eftir Nóa Barkarson úr Víðistaðaskóla og sagan Þetta er sagan hans Nizar eftir Særúnu Björk Jónasdóttur úr Hraunvallaskóla.
Dómnefnd
Í dómnefnd sátu: Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, Ásta Margrét Eiríksdóttir, Heiðrún Kristjánsdóttir, Óskar Guðjónsson og Símon Jón Jóhannsson.
Kynnir og stjórnandi keppninnar var Ingibjörg Einarsdóttir.