Nokkrir fastagestir í Suðurbæjarlaug mættu í laugina snemma í morgun enda var veðrið nokkuð skaplegt snemma í morgun.
Hlauparar sem venjulega fjölmenna og hlaupa frá Suðurbæjarlaug â laugardagsmorgnum voru aðeins fjórir og hlupu um götur bæjarins næst miðbænum á meðan snjóstormur geysaði.
Aðrir sundgestir voru fáir og aðeins tveir syntu í lauginni um hádegisbil.
Götur og gangstéttar voru ruddar af mikilli ákefð en nokkuð þungfært var um tíma.