fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirFargjald með strætisvögnum hækka um 4-4,8%

Fargjald með strætisvögnum hækka um 4-4,8%

Almennt staðgreiðslugjald og stakt fargjald á vefnum mun kosta 440 kr.

Á fundi stjórnar Strætó bs. 9. desember sl. var samþykkt að hækka gjaldskrá Strætó í takt við almenna verðlagshækkun á rekstrarkostnaði Strætó. Í rekstri Strætó vegur launakostnaður og olíuverð um 70% af heildar rekstrarkostnaði. Fyrirséð er 10% hækkun launa á næsta ári og þjóðhagsspá spáir allt að 15% hækkun á olíuverði.

Almennt staðgreiðslugjald og stakt fargjald í appinu verða 440 kr., sem er hækkun um 4,8%, en staðgreiðsla og stakt fargjald í appinu fyrir börn yngri en 18 ára, aldraða og öryrkja verða óbreytt. Önnur fargjaldaform eins og farmiðar og kort hækka í kringum 4,0%.

Ný gjaldskrá Strætó mun taka gildi 3. janúar 2017

Í eigendastefnu Strætó sem samþykkt var í apríl 2013 kemur fram að stefnt skuli að því að fargjaldatekjur standi undir allt að 40% af almennum rekstrarkostnaði Strætó. Í dag standa fargjaldatekjur undir um 32% af almennum rekstrarkostnaði félagsins.

Upplýsingar um nýja gjaldskrá er að finna á vef Strætó

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2