fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimFréttirFH og Dundalk gerðu jafntefli úti

FH og Dundalk gerðu jafntefli úti

Steve Lennon skoraði mikilvægt mark á útivelli

Fyrri leikur FH og Dundalk  og FH  í 2. um­ferð for­keppni Meist­ara­deild­ar Evr­ópu í knatt­spyrnu var í gær á Orielleik­vang­in­um í Dundalk á Írlandi.

Skildu liðin jöfn, 1-1 en leikurinn var að sögn jafn og einkenndist af mikilli baráttu og fátt um góð marktækifæri. Dundalk náði forystunni með marki David McMillan á 66. mínútu en Steven Lennon jafnaði fyrir FH á 77. mínútu gegn sínum gömlu samherjum.

Síðari leikur liðanna verður í Kaplakrika miðvikudaginn 20. júlí kl. 19.15. FH-ing­ar eru í ágætri stöðu fyr­ir þann leik með mark skorað á útivelli.

Komist FH áfram spilar liðið á móti annað hvort BATE Borisov frá Hvíta-Rússlandi eða SJK Seinajoki frá Finnlandi en staðan í einvígi þeirra er 2-0 fyrir BATE eftir leikinn í Hvíta-Rússlandi.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2