Hafnarfjarðarmótinu í handbolta karla lauk í dag með leik FH og Hauka. Mótið, sem er undirbúningsmót fyrir Íslandsmótið, var óvenju jafnt í ár og hart barist í öllum leikjum. FH, Haukar og Valur unnu öll tvo leiki en FH var með hagstæðustu markatöluna og sigraði því á mótinu.
Leikur FH og Hauka var jafn í upphafi en fljótlega tóku FH-ingar yfirhöndina og í seinni hálfleik var aldrei spurning hvernig leikurinn færi. Mestu munaði um glæsilega frammistöðu Óðins Þórs Ríkharðssonar, hægri hornamanns FH sem skoraði 9 mörk en hann er nýkominn til FH. Þá skoraði Einar Rafn Eiðsson einnig 9 mörk og Þorgeir Björnsson skoraði 5. Ágúst Elí Björgvinsson varði 15 skot í marki FH.
Hjá Haukum var Janus Daði Smárason markahæstur með 6 mörk og Adam Haukur Baumruk skoraði 4.
Úrslit | ||
Leikur 1 | FH – UMFA | 35-31 (19-15) |
Leikur 2 | Haukar – Valur | 35-25 (16-11) |
Leikur 3 | Haukar – UMFA | 32-29 (15-13) |
Leikur 4 | FH – Valur | 25-26 (13-11) |
Leikur 5 | UMFA – Valur | 24-32 (15-12) |
Leikur 6 | FH – HAUKAR | 31-22 (18-14) |