Tilboð voru opnuð í dag í byggingu körfubolta- og æfingahús við íþróttahús Hauka á Ásvöllum.
Fimm tilboð bárust og buðu SÞ verktakar ehf. lægst, 516,6 milljónir kr. Tilboðið fyrirtækisins er 94% af kostnaðaráætlun sem hljóðaði upp á 549,2 milljónir kr.
Hafnarfjarðarbær samþykkti í vikunni fjárhagsáætlun þar sem gert er ráð fyrir að 200 milljónir kr. fari til byggingar hússins árið 2017 en Hafnarfjarðarbær greiðir 90% af kostnaði þess.
Tilboð | % af áætlun | |
SÞ verktakar ehf. | 516.305.322 kr. | 94,0% |
LNS Saga ehf. | 544.588.467 kr. | 99,2% |
Nesnúpur ehf. | 560.908.396 kr. | 102,1% |
Ístak hf | 583.708.141 kr. | 106,3% |
Eykt ehf. | 665.550.606 kr. | 121,2% |
Kostnaðaráætlun
|
549.247.156 kr.
|
Verkið nær til byggingar íþróttasalar og fullnaðarfrágangs að utan sem innan ásamt frágangi lóðar.
Byggingu íþróttasalar skal vera lokið og hann tekinn í notkun 2. febrúar 2018 en endanlegum frágangi á lóð skal vera lokið eigi síðar en 1. júlí 2018.