Vegna bilunar í prentvél hjá Ísafoldarprentsmiðju tafðist prentun Fjarðafrétta svo ekki náðist að dreifa blaðinu í morgun, en því verður dreift á morgun, að morgni uppstigningardags með Póstdreifingu. Dreifing til fyrirtækja hefst hins vegar í dag.
Íbúar í Hafnarfirði eiga því að geta lesið Fjarðarfréttir með morgunkaffinu á morgun.
Blaðið liggur einnig frammi í Fjarðarkaupum og ný og eldri blöð má lesa á Bókasafni Hafnarfjarðar.
Vefútgáfuna má lesa hér fyrir neðan (smelltu á rammann neðst til hægri til að skoða á heilum skjá. Tvísmelltu til að stækka eða minnka) eða sæktu blaðið á pdf hér.