fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirFólk er hvatt til að rýma gosstöðvarnar fyrir kl. 17 í dag

Fólk er hvatt til að rýma gosstöðvarnar fyrir kl. 17 í dag

Vegna veðurs vill Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hvetja fólk sem leggur leið sína að eldgosinu í Geldingardölum í dag að yfirgefa eldgosasvæðið fyrir klukkan fimm í dag.

Töluverð umferð hefur verið um gossvæðið í dag og myndast hafa langar bílaraðir á Suðurstrandavegi sem opnaður hefur verið fyrir umferð frá Grindavík að ný merktri gönguleið að gosstöðvunum. Þaðan er svo hægt að aka Krýsuvíkurveginn í bæinn.

Samkvæmt spám Veðurstofu Íslands er í dag suðvestlæg átt og mun draga smám saman úr vindi. Eftir klukkan 19 má gera ráð fyrir að vindur sé undir 3 m/s og því getur magn SO2 nálægt eldstöðinni farið yfir 9000 µg/m3.

Því getur skapast mikil hætta fyrir fólk sem er þar á staðnum. Miðað við vindaspá næst gosstöðvunum er því líklegt að loftgæði í næsta nágrenni gosstöðvanna og að gasmengun frá CO2 í dældum og lægðum nálgist lífshættuleg gildi.

Það er því ráðlegt að halda sér uppi á hæðum og ekki fara niður í dali eða dældir í næsta nágrenni gosstöðvanna og halda sér innan stikuðu gönguleiðarinnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra

Sjá heimasíðu Veðurstofu Íslands

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2