fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirFramboðslisti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði

Guðmundur Árni Stefánsson, fv. bæjarstjóri leiðir listann

Framboðslisti Samfylkningarinnar í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða með lófataki á fjölmennum félagsfundi Samfylkingarinnar 7. mars s.l.

Guðmundur Árni Stefánsson leiðir listann en hann sigraði í rafrænu flokksvali. aðrir sem hlutu bindandi kosningu vouru Árni Rúnar Þorvaldsson, Hildur Rós Guðbjargsdóttir, Stefán Már Gunnlaugsson og Kolbrún Magnúsdóttir.

Guðmundur Árni Stefánsson segir að listinn sé feyki sterkur og samanstandi af öflugu fólki á mismunandi aldri og með ólíkan bakgrunn. „Framboðslisti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði er ekki bara sigurstranglegur heldur líka fjölbreyttur en á listanum er fólk úr öllum áttum úr hafnfirsku samfélagi. Við erum með ungt og ferskt fólk í bland við reynslu sem hefur brennandi áhuga á öllum hliðum samfélagsins. Hafnarfjörður er jafnaðarmannabær og við erum mætt til leiks og ætlum að láta verkin tala.“

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði:

  1. Guðmundur Árni Stefánsson, 66, fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði
  2. Sigrún Sverrisdóttir, 44, bæjarfulltrúi og hjúkrunarfræðinemi
  3. Árni Rúnar Þorvaldsson, 45, grunnaskólakennari og varabæjarfulltrúi
  4. Hildur Rós Guðbjargardóttir, 29, kennaranemi og starfsmaður á Hrafnistu
  5. Stefán Már Gunnlaugsson, 48, héraðsprestur og varabæjarfulltrúi
  6. Kolbrún Magnúsdóttir, 44, mannauðsstjóri
  7. Auður Brynjólfsdóttir, 26, starfsmaður á leikskóla
  8. Jón Grétar Þórsson, 39, starfsmaður hjá félagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar
  9. Gunnar Þór Sigurjónsson, 28, upplýsingaöryggisstjóri
  10. Helga Þóra Eiðsdóttir, 58, markaðsfræðingur
  11. Gauti Skúlason, 28, verkefnastjóri hjá fimm aðildarfélögum BHM
  12. Gundega Jaunlinina, 22, starfsmaður hjá verkalýðsfélaginu Hlíf
  13. Snædís Helma Harðardóttir, 21, háskólanemi í þroskaþjálfun og leikskólastarfsmaður
  14. Símon Jón Jóhannsson, 64, framhaldskólakennari í Flensborg
  15. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, 28, starfsmaður hjá Þroskahjálp
  16. Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir, 49, aðstoðarskólastjóri í Hraunvallaskóla
  17. Reynir Ingibjartsson, 81, rithöfundur
  18. Sigurjóna Hauksdóttir, 20, háskólanemi í uppeldis- og menntunarfræði
  19. Gylfi Ingvarsson, 77, eldri borgari og vélvirki
  20. Sigrid Foss, 68, fótaaðgerðafræðingur
  21. Steinn Jóhannsson, 53, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð
  22. Adda María Jóhannsdóttir, 55, bæjarfulltrúi og framhaldskólakennari

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2