fbpx
Sunnudagur, júlí 14, 2024
HeimFréttirFramkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 hefjast aftur á næstu dögum

Framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 hefjast aftur á næstu dögum

Framkvæmdir við Suðunesjalínu 2 munu hefjast aftur á næstu dögum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsneti.

Gert er ráð fyrir línunni á aðalskipulagi allra sveitarfélaga á leiðinni ásamt svæðisskipulagi og hafa öll fjögur sveitarfélögin á línuleiðinni samþykkt framkvæmdaleyfi.

Samið hafði verið við um 96% af landeigendum en ráðuneyti umhverfis- orku- og loftslagsmála hefur heimilað eignarnám á þeim jörðum sem ekki hafa náðst samningar við.

Búið er að leggja stærsta hluta línuvegar sem liggur í landi Hafnarfjarðar en eftir er um einn kílómetri en Suðurnesjalína 1 og 2 munu liggja samhliða frá landamerkjum Hafnarfjarðar og Voga.

Hér endar línuvegurinn, skammt frá Lónakotsseli, þegar um 1 km er eftir að landamerkjum Voga

Byrjað verður á slóðagerð og í kjölfarið verður borað fyrir stagfestum og undirstöður settar niður.  Öllum helstu innkaupum og útboðum er lokið og möstur, leiðarar og annað efni komið í framleiðslu.

Stefnt er að því að línan verði tekin í rekstur haustið 2025.

Byrjað var á hluta framkvæmdarinnar fyrir tveimur árum á milli Rauðamels og Fitja við byggingu nýs tengivirkis á Njarðvíkurheiði, strenglagnar til Fitja og reisingu Reykjaneslínu 1 milli Njarðvíkurheiðar og Rauðamels. Gert er ráð fyrir að þessum hluta framkvæmda verði lokið í kringum næstu áramót.

Í tilkynningu frá Landsneti segir að með tilkomu Suðurnesjalínu 2, Reykjaneslínu 1 og spennistöðvar á Njarðvíkurheiði verði flutningskerfið sveigjanlegra í rekstri og afhendingaröryggi á Suðurnesjum aukist til muna. Nægjanleg flutningsgeta verði til ráðstöfunar sem geti mætt stærri frávikum þegar stórar framleiðslueiningar eða stærri notendur aftengjast kerfinu skyndilega eða til lengri tíma t.d. vegna viðhalds.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2