Þriðjudagur, mars 4, 2025
HeimFréttirFramleiða snjó á Víðistaðatúni

Framleiða snjó á Víðistaðatúni

Skíða- og skautafélagið fékk bæinn til að kaupa tvær litlar snjóbyssur

Það sprautaðist snjór út í myrkið á Víðistaðatúni sl. mánudagskvöld þar sem þeir Sveinbjörn Sigurðsson og Sigurður Ísleifsson höfðu komið fyrir nýrri snjóbyssu til að framleiða snjó á túninu.

Markmiðið er að búa til snjó sem nota megi við æfingar á göngu­skíðum.

Æfintýrið hófs í raun fyrir nokkuð löngu er Sveinbjörn kom með þá hugmynd að sniðugt væri að kaupa litlar snjóbyssur sem nota mætti til að búa til snjó fyrir gönguskíðaæfingar og nota mætti til að búa til snjó í jólaþorpið.

Nota þarf háþrýstidælu fyrir vatn og loftpressu með snjóbyssunni.

Vel var tekið í hugmyndina en endanleg ákvörðun og kaup drógust á langinn en úr varð að Hafnarfjarðarbær keypti tvær byssur frá sænska fyrirtækinu 3graderkallt. Byssurnar eru ein­faldar í meðförum en þarf að tengja við háþrýstidælu og loftpressu og duga dælur sem notaðar eru til heimabrúks.

Vindurinn dreifði snjónum á stórt svæði

Það blés nokkuð kröfuglega á mánudagskvöld og snjórinn dreifð­ist nokkuð víða og voru þeir félagar nokkð ánægðir með árangurinn þó hann myndi teljast lítill í saman­burði við alvöru snjóbyssur á skíðasvæðunum.

Snjórinn er mun þyngri en hefð­bundinn snjór og helst lengur.

Stefna þeir félagar að koma byss­um fyrir í brekkunni við kirkj­una en þurfa að útvega aðra há­þrýstidælu og loftpressu en slík­ar fylgdu ekki með í kaupunum.

Þeir stóðust ekki freistinguna að bregða á leik.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2