Friðrik Dór Jónsson, tónlistarmaður, söngvari og lagasmiður, var í dag útnefndur bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2021.
Hann hefur frá unga aldri sungið sig inn í hug og hjörtu Hafnfirðinga og auðgað menningarlíf bæjarins með framkomu sinni, skemmtun og viðburðum.
Bæjarlistamaður fær 1,5 milljónir í viðurkenningarskyni til að vinna áfram að list sinni.
Hóf feril sinn með hafnfirsku hljómsveitinni Fendrix
Friðrik Dór söng sig inn í hjörtu þjóðarinnar árið 2009 þegar hans fyrsta lag „Hlið við hlið“ sló í gegn og hefur sent frá sér hvern slagarann á fætur öðrum síðan. Hann var valinn nýliði ársins á hlustendaverðlaunum FM957 árið 2010 og í kjölfarið kom út platan „Allt sem þú átt“ en með henni breytti Friðrik Dór landslaginu í íslenskri tónlist og festi sig í sessi sem einn af vinsælustu tónlistarmönnum landsins. Plöturnar eru nú orðnar þrjár, Allt sem þú átt, Vélrænn og Segir ekki neitt, og vinnur Friðrik Dór þessa dagana að sinni fjórðu breiðskífu sem mun líta dagsins ljós á árinu en fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu, „Segðu mér“, kom út í janúar.
Friðrik Dór hóf feril sinn með hafnfirsku hljómsveitinni Fendrix sem hann stofnaði með félögum sínum í Setbergsskóla þegar hann var í 8. bekk. Hljómsveitin tók þátt í Músíktilraunum árið 2003 og komst í úrslit. Þá spilaði Friðrik Dór á trommur en hann stundaði nám í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar á sínum yngri árum.
Meðal þekktra laga Friðriks eru Til í allt, Hringd’í mig, Fröken Reykjavík og lagið Í síðasta skipti sem Friðrik Dór flutti í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2015. Þrátt fyrir að lenda í öðru sæti það árið var hann hluti af íslenska hópnum sem tók þátt í undankeppni Eurovision það ár og varð lagið í hans flutningi afar vinsælt.
Öllu tjaldað til í heimabænum
Undir heitinu „Í síðasta skipti“ fagnaði Friðrik Dór þrítugsafmæli sínu með tvennum tónleikum í Kaplakrika í október 2018 sem áttu að endurspegla ákveðin leiðarlok á ferli Friðriks. Tónleikarnir tókust einstaklega vel, Friðrik Dór fór á kostum á heimavelli og troðfullur Kaplakriki söng hástöfum með öllum vinsælustu lögum hans.
Tónleikarnir voru sem betur fer langt í frá síðustu tónleikar Friðriks Dórs en hann og bróðir hans Jón Jónsson hafa til dæmis sameinað krafta sína á tónleikum í Bæjarbíó í sínum heimabæ og tjaldað öllu til enda báðir þekktir fyrir góða nærveru og mikla gleði.
„Hann er unga fólkinu okkar frábær fyrirmynd og hefur fetað slóðir sem marga dreymir um að feta. Hæfileikabúnt, frábær söngvari og hugljúfur lagahöfundur með hjarta sem sannarlega slær í Hafnarfirði“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Þeir sem hlotið hafa nafnbótina bæjarlistamaður Hafnarfjarðar í gegnum árin eru:
- 2020 – Bergrún Íris Sævarsdóttir, barnabókahöfundur og teiknari
- 2019 – Björk Jakobsdóttir, leikkona og leikstjóri
- 2018 – Björgvin Halldórsson, tónlistarmaður
- 2017 – Steingrímur Eyfjörð, myndlistarmaður
- 2014 – Andrés Þór Gunnlaugsson, tónlistarmaður
- 2009 – Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, söngkona
- 2008 – Sigurður Sigurjónsson, leikari
- 2007 – Jónína Guðnadóttir, myndlistarmaður
- 2006 – Elín Ósk Óskarsdóttir, söngkona
- 2005 – Sigrún Guðjónsdóttir (Rúna), myndlistarmaður