fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirFyrstu innlendu smitin - Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna

Fyrstu innlendu smitin – Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna

Smitaðir orðnir 43 á Íslandi og er smithlutfall orðið næst hæst í heiminum

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna kórónaveiru eftir að fyrstu innlendu smitin voru greind í dag og eru smitaðir nú orðnir 43. Tveir sem greindir voru í dag reyndust hafa smitast hér á landi.

Það er gert m.a. á grunni þess að sýkingin er nú farin að breiðast út innanlands.

Virkjun neyðarstigs hefur ekki teljandi áhrif á almenning umfram hættustig sem varað hefur frá 28. febrúar sl. Ekki hefur verið lagt á samkomubann.

Stjórnvöld og viðbragðsaðilar hafa undanfarið unnið að miklu leyti eins og um neyðarstig væri að ræða og því hafa ýmsar ráðstafanir sem neyðarstig kveður á um þegar verið gerðar. Þar má nefna áætlanir um vöktun og farsóttagreiningu ásamt því að tryggja að sóttvarnaráðstöfunum sé beitt.

Sóttvarnalæknir beinir því sérstaklega til þeirra sem teljast til viðkvæmra hópa, einkum þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma og eldri einstaklinga að huga vel að hreinlætisaðgerðum og forðast mannamót að óþörfu.

Kynningarmyndband

Myndskeiðið hér að ofan er samstarfsverkefni Landspítalans og embættis landlæknis. Því er ætlað að fræða almenning og atvinnulífið um kórónaveiruna COVID-19. Fjallað er um helstu smitleiðir og öflugar varnir gegn smiti. Þá er í myndbandinu viðtal við Ásu Atladóttur, verkefnastjóra sýkingavarna hjá embætti landlæknis.

Nánari upplýsingar á vef landlæknis:
landlaeknir.is/koronaveira/thad-sem-thu-tharft-ad-vita/

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2