fbpx
Fimmtudagur, desember 12, 2024
target="_blank"
HeimFréttirFyrstu möstur Suðurnesjalínu 2 væntanlega reist í vor

Fyrstu möstur Suðurnesjalínu 2 væntanlega reist í vor

Framkvæmdir við Suðurnesjalínu 2 ganga vel skv. tilkynningu frá Landsneti og er tæplega helmingi af vinnu við slóðagerð, jarðvinnu og undirstöður lokið.

Tveir verktakar koma að jarðvinnu, en Grafa og grjót ehf. sér um slóðagerð og að koma fyrir forsteyptum undirstöðum og stagfestum og Stéttafélagið sem er að hefja vinnu við staðsteyptar undirstöður einpóla mastra í Hafnarfirði.

Leiðarar voru keyptir frá Indlandi og komu þeir til landsins í október en fyrstu möstrin eru komin í skip frá Spáni og eru væntanleg til landsins fyrir jól. Næsta vor er gert ráð fyrir að reising mastra hefjist.

Kröfum Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands og Hraunavina vísað frá dómi

Í gær kvað héraðsdómur Reykjaness upp úrskurð í máli Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands og Hraunavina vegna framkvæmdaleyfis Voga. Kröfum beggja samtaka um ógildingu framkvæmdaleyfisins var vísað frá dómi og þeim gert að greiða málskostnað. Eftir standa kröfur fimm landeiganda af tæplega 150 um ógildingu framkvæmdaleyfisins og er búist við að aðalmeðferð fari fram um miðjan febrúar á næsta ári.

Einnig er gert ráð fyrir að aðalmeðferð í máli sömu landeigenda til ógildingar á heimild til eignarnáms fari fram í héraðsdómi Reykjavíkur um miðjan febrúar.

Segir að lokum í tilkynningunni að vonir standi til að hægt verði að koma línunni í rekstur seinnihluta árs 2025.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2