Fjölskylduráð hefur óskað eftir því að leitað verði eftir aðilum til að fara í úttekt á starfsemi barnaverndar í Hafnarfirði.
Í greinagerð vegna fjárhagsáætlunar 2020 kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir hækkun dvalarkostnaðar í barnavernd eins og reyndin hafi verið síðustu ár. Sé það fyrst og fremst vegna máls sem flyst frá barnavernd yfir í málaflokk fatlaðs fólks.
Vegna umfangs málaflokksins og fjölgunar mála hefur verið ákveðið að fara í úttekt á skipulag barnaverndarstarfs í Hafnarfirði. Tilgangur úttektarinnar er að fá faglegt og hlutlaust mat á skipulagi starfsins, úrræðum, starfsumhverfi starfsmanna, verkaskiptingu og skilgreiningu á ábyrgðarsviði. Úttektinni er m.a. ætlað að skerpa á verkferlum og styðja við núverandi starf.
Áætlun 2020 gerir ráð fyrir 460 milljónum króna í þjónustu við börn og ungmenni sem jafngildir 89% af kostnaði vegna barnaverndarmála á árinu 2019.