fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirGjalddögum fasteignaskatta og -gjalda fjölgað til að létta greiðslubyrði

Gjalddögum fasteignaskatta og -gjalda fjölgað til að létta greiðslubyrði

Sveitarfélögin í Kraganum leggja fram samræmda tillögu sem lækkar mánaðarlega upphæð um ca. 10%

Sveitarfélögin Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær og Seltjarnarnes munu leggja fram tillögu í bæjarráðum og bæjarstjórnum sveitarfélaganna í vikunni um frestun fasteignaskatta og fasteignagjalda á eigendur íbúða- og atvinnuhúsnæðis.

Tillagan gerir ráð fyrir að gjalddögum ársins verði fjölgað til að létta mánaðarlega greiðslubyrði íbúa og atvinnulífs. Eftirstöðvum ógjaldfallinna fasteignaskatta og fasteignagjalda ársins, sbr. vatnsveitu, holræsis- og sorphirðugjalda, fyrir íbúða- og atvinnuhúsnæði verði dreift á mánuðina apríl/maí (eftir því sem við á í hverju sveitarfélagi) fram í desember.

Þetta er gert til þess að létta undir með þeim aðilum sem nú þegar hafa fundið fyrir eða munu finna fyrir tekjufalli vegna þeirra efnahagsaðstæðna sem nú ríkja.

Í dag eru gjalddagar 10 á árinu og er síðasta gjalddagi 1. nóvember. Það þýðir að húseigandi sem á að greiða 30 þúsund kr. á mánuði næstu 8 mánuðina greiðir þess í stað 26.666 næstu 9 mánuðina.

Eigendur atvinnuhúsnæðis geta sótt um frestun þriggja gjalddaga

Samkvæmt tillögunni geta eigendur atvinnuhúsnæðis sem hafa orðið fyrir verulegu tekjutapi sótt um frestun allt að þriggja gjalddaga fasteignaskatta og fasteignagjalda sem færast þá á fyrstu mánuði ársins 2021. Með verulegu tekjutapi er átt við að minnsta kosti 25% tekjufalli milli sömu mánaða á árunum 2019 og 2020.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2