Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar stóð fyrir sinni árlegu danskeppni, Lotto Open, sl. helgi þar sem 176 dansarar á öllum aldri og á öllum getustigum, frá fjölmörgum félögum kepptu.
Í ár komu einnig dómarar og 16 keppendur frá Danmörku sem settu nokkurn svip á keppnina.
Flest keppnispör, 26, komu frá Dansíþróttafélagi Kópavogs, 16 komu frá Dansdeild HK og jafnmörg frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Yngsti keppandinn var 6 ára en sá elsti 27 ára.
Keppt var í einstaklingskeppni og í liðakeppni en metþátttaka var í liðakeppninni, alls 10 lið.
Umgjörðin var glæsileg að vanda og fjölmargir fylgdust með keppninni báða dagana en keppt var í íþróttahúsinu við Strandgötu.