fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirGöngumaður í vandræðum eftir fall á Helgafelli

Göngumaður í vandræðum eftir fall á Helgafelli

Hrasaði og treysti sér ekki niður

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út á áttunda tímanum í kvöld vegna göngumanns sem hafði hrasað í hlíðum Helgafells ofan Hafnarfjarðar um klukkan 16 í dag.

Maðurinn, sem var einn á ferð, treysti sér ekki til að halda för sinni áfram án aðstoðar.

Göngufólk sem gekk fram á manninn kallaði á hjálp og var björgunarfólk komið að honum laust fyrir hálf níu í kvöld. Það aðstoðaði manninn niður af fjallinu og flutti hann til móts við sjúkrabíl.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2