fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirGríðarleg hækkun fasteignaskatts í Hafnarfirði

Gríðarleg hækkun fasteignaskatts í Hafnarfirði

Hækkar að jafnaði um 22% en sums staðar um allt að 30%

Bæjarbúar hafa nú fengið álagningar­seðla sína um fasteignaskatt. Þrátt fyrir gríðarlega hækkun á fasteignamati íbúa í Hafnarfirði, eða að jafnaði um 22%, sá bæjarstjórn enga ástæðu til að lækka innheimtuhlutfall sitt og hefur því á þessu ári um 22% hærri tekjur af fasteignaskatti en á síðasta ári auk þess sem tekjur hækka vegna fjölgunar íbúða.

Hækkunin er misjöfn og dæmi eru um allt að 30% hækkun fasteignaskattsins sem hlýtur að teljast gríðarleg hækkun.

Reynt að slá ryki í augu bæjarbúa

Í tilkynningu á vef bæjarins segir: „Álagningarprósentur fráveitugjalds og vatnsgjalds lækka til þess að koma til móts við 22% meðalhækkun fasteigna­mats milli ára. Miðað er við að fast­eignagjöld íbúðarhúsnæðis í Hafnarfirði hækki að meðaltali í takti við verðlag en ljóst er að fasteignamat í bænum, og þar með fasteignagjöld, hefur hækkað mismunandi mikið eftir íbúðargerð og staðsetningu. Sorphirðugjald hækkar svo frá fyrra ári vegna innleiðingar á nýju sorphirðukerfi.“

Fráveitugjald og vatnsgjald hafa ekkert með fasteignaskatta að gera og það er verið að slá ryki í augu bæjarbúa með því að segja að verið sé að lækka þessi gjöld til að koma til móts við hækkun á fasteignaskatti.

Bæjarstjórnin tók ákvörðun um að hækka fasteignaskattinn með því að ákveða að lækka ekki álagningarprósentu fasteignaskattsins sem hefði verið einfaldasta og eðlilegasta leiðin „til þess að koma til móts við 22% meðalhækkun fasteignamats milli ára“.

Munur á þjónustu­gjöldum og sköttum

Vatnsgjald og fráveitugjald eru þjónustugjöld en ekki skattur eins og fasteignaskatturinn og það gilda reglur um það hversu mikið má innheimta. Í raun má aðeins innheimta raunkostnað við þessa þjónustu.

Fráveitugjaldið lækkar reyndar ekki á milli ára en vatnsgjaldið gerir það sem segir að það hafi verið oftekið og gætu bæjarbúar því í raun látið kanna hvort ástæða væri til að gera kröfur um endurgreiðslu á ofteknum gjöldum.

Þó svo vatnsgjald, lóðarleiga, fráveitugjald og sorp­hirðugjald sé innheimt á sama seðli þá er þarna verið að blanda saman sköttum og afgjaldi af veittri þjónustu.

Til að afvegaleiða eru öll þessi gjöld nefnd fasteignagjöld, en þá mætti líka bæta við rafmagni, hitaveitu og tryggingum svo eitthvað sé nefnt.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2