Guðlaug Ósk Gísladóttir hefur verið ráðin í stöðu sviðsstjóra fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðarbæjar. Var ráðning hennar samþykkt á fundi bæjarstjórnar í gær.
Guðlaug er félagsráðgjafi að mennt, með MPA í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands og hefur starfað sem deildarstjóri þjónustu- og ráðgjafadeildar hjá velferðarsviði Kópavogsbæjar frá árinu 2000.
Guðlaug mun hefja störf í upphafi á nýju ári og tekur hún við af Rannveigu Einarsdóttir sem er farin til starfa sem sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
26 sóttu um stöðuna.