Hafnfirðingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Keili, hefur verið valin kylfingur ársins sem og Haraldur Franklín Magnús úr GR. Er þetta í annað sinns sem Guðrúnu Brá hlotnast þessi heiður.
Guðrún Brá er fædd árið 1994 og hefur alla tíð leikið fyrir Golfklúbbinn Keili í Hafnarfirði. Hún gerðist atvinnukylfingur árið 2018 er með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni, sterkustu atvinnumótaröð í kvennaflokki í Evrópu.