Vegna vinnu við vegamót Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar í Garðbæ verður umferð á Hafnarfjarðarvegi til suðurs beint um hjáleið til norðurs við Vífilsstaðaveg, eftir Hraunsholtsbraut inn í Engidal. Búast má við töfum vegna framkvæmdanna. Er áætlað að lokunin vari milli kl. 8 og 18 á morgun laugardag.
Ekki verður hægt að komast af Hafnarfjarðarvegi inn á Vífilsstaðaveg til austurs. Þeim ökumönnum er bent á hjáleið um Goðatún og Litlatún og inn á Vífilsstaðaveg.
Þrátt fyrir framkvæmdir verður umferð um Vífilsstaðaveg og Hafnarfjarðarveg til norðurs óhindruð en búast má við einhverjum umferðartöfum.