Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðherra Logi Már Einarsson hefur skipað Örn Hrafnkelsson í embætti landsbókavarðar.
Alls bárust 15 umsóknir um starfið sem auglýst var 11. október sl.
Örn mun taka við starfi landsbókavarðar um næstu mánaðarmót samhliða því að Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir fer á eftirlaun eftir langan feril við Landsbókasafn Íslands.
Örn er 57 ára Hafnfirðingur,með B.A. og M.A. próf í sagnfræði og M.P.A. gráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Frá árinu 1993 hefur Örn starfað hjá Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. Í fyrstu sem bókavörður í þjóðdeild en síðar sem fagstjóri og forstöðumaður handritadeildar. Frá árinu 2011 hefur Örn gegnt starfi sviðsstjóra við varðveisludeild Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns.
Örn er mikill áhugamaður um handritalestur og útgáfu og hefur bæði skrifað fjölda greina þess efnis og erindi.