Karlalið Hauka í handknattleik sigraði í dag AC Diomidis Argous frá Grikklandi 28-20 í seinni leik liðanna í Evrópukeppi í handknattleik. Haukar unnu í gær fyrri leik liðanna, 33-26 og eru því komnir örugglega í aðra umferð.
Grikkir keyptu heimaleikjarétt Hauka en vonandi fá hafnfirskir handboltaáhugamenn Evrópuleik á Ásvöllum í annarri umferð.