Kennalið Hauka í unglingaflokki lék til úrslita gegn Keflavík í bikarkeppni KKÍ á sunnudag. Leikið var í Laugardalshöll þar sem einnig fóru fram úrslitaleikir í meistaraflokki.
![](https://www.fjardarfrettir.is/wp-content/uploads/2017/02/Haukar_karfa_unglingar_Thora-279x300.jpg)
Leikurinn var gríðarspennandi og jafnt eftir venjulegan leiktíma. Haukastelpurnar voru hins vegar mun sterkari í framlengingunni og sigruðu 67-59 og eru því bikarmeistarar í unglingaflokki kvenna í körfubolta.
Þóra Kristín Jónsdóttir var valin maður úrslitaleiksins. Hún skoraði m.a. glæsilega þrennu en hún skoraði samtals 17 stig, náði 11 fráköstum, átti 10 stolna bolta og 8 stoðsendingar.