fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirHaukar sækja jólatrén heim í fjáröflun

Haukar sækja jólatrén heim í fjáröflun

Þeir sem eru með lifandi jólatré þurfa sjálfir að losa sig við það að jólahátíðinni lokinni. Sumir klippa niður og nota í jarðgerð og föndra úr stofninum en ekki er alls staðar áhugi fyrir því og þá þarf að aka með tréð í Sorpu.

En til er önnur leið því Körfuknattleiksdeild Hauka býðst til að sækja jólatrén heim og láta endurvinna það í samstarfi við Terru.

Þjónustan kostar 2.500 kr. og þarf að panta og greiða hana hér fyrir miðnætti fimmtudaginn 6. janúar. Jólatréð þarf svo að setja við lóðarmörk og koma Haukar að sækja tréð föstudagskvöldið 7. janúar.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2