Veðurstofan spáir vestan hvassviðri í dag frá kl. 15, jafnvel stormi með snjókomu eða éljagangi. Búast má við takmörkuðu skyggni í skafrenningi, versnandi akstursskilyrðum og samgöngutruflunum. Hvassast verður í vesturhluta höfuðborgarsvæðisins en mest ofankoma í efribyggðum. Því má búast við mestum vindi á Álftanesi og hvasst getur orðið á yst á Hvaleyrarholti.
Skv. spá verður SV til V vindur í Hafnarfirði.
Talað er um að í hádeginu sé svikalogn á undan stórviðrinu og fólk hvatt til að láta ekki blekkjast.
Blika spáir mest 22 m/s í Hafnarfirði um kl. 15 og um og yfir 20 m/s næstu nótt