fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirHeitavatnslaust á stórum hluta höfuðborgarsvæðisins frá kl. 22 á miðvikudag

Heitavatnslaust á stórum hluta höfuðborgarsvæðisins frá kl. 22 á miðvikudag

Heitavatnslaust frá kl. 22 þann 8. nóvember í Garðabæ, Álftanesi, Hafnarfirði, Kópavogi og Breiðholti.

Vegna nauðsynlegrar viðgerðar á Suðuræð verður heitavatnslaust í Garðabæ, Álftanesi, Hafnarfirði, Kópavogi og Breiðholti frá kl. 22 miðvikudaginn 8. nóvember.

 

Stefnt er að því að heitu vatni verði aftur hleypt á um fimm tímum síðar og búist er við að fullur þrýstingur verði kominn aftur á hjá öllum íbúum á svæðinu um kl. 7 fimmtudagsmorguninn 9. nóvember.

Mikilvægt er að íbúar hafi skrúfað fyrir krana til að koma í veg fyrir slys og tjón þegar vatnið kemur á aftur.

Þegar vatni er hleypt aftur á viðamikið lagnakerfi eftir lokun er eðlilegt að lekar geti komið upp. Í slíkum tilvikum er mikilvægt að tilkynna það svo hægt sé að bregðast við sem fyrst.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2