fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirHelga sækist eftir 2.-3. sætinu í Sjálfstæðisflokknum

Helga sækist eftir 2.-3. sætinu í Sjálfstæðisflokknum

Helga Ingólfsdóttir sækist eftir 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Hún hefur sent út tilkynningu þar sem hún óskar eftir stuðningi til þess að vinna áfram að betri bæ Hafnfirðingum til heilla.

Helga hefur setið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í þrjú kjörtímabil og verið formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs og varaformaður fjölskylduráðs frá árinu 2014

„Í störfum mínum sem bæjarfulltrúi hef ég ávallt lagt áherslu á góða þjónustu við bæjarbúa þar sem jafnræði og góð stjórnsýsla er í öndvegi og skýr markmið um ábyrgan rekstur og sjálfbærni.

Reynsla mín úr atvinnulífinu og breiður bakgrunnur hefur komið að góðum notum í fjölbreyttum verkefnum og ég hef áhuga á að nýta áfram mína reynslu og þekkingu fyrir sveitarfélagið okkar.

Ég hef setið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í bráðum þrjú kjörtímabil og verið formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs og varaformaður fjölskylduráðs frá árinu 2014. Þar hef ég verið í forsvari fyrir ýmis framfaramál og má þar nefna umhverfismálin, uppbyggingu íþróttamannvirkja, byggingu nýs hjúkrunarheimilis að Sólvangi ásamt endurbótum á eldra húsi, frístundatyrk fyrir eldri borgara, stofnun vinnustaðar fyrir fólk með fötlun á Suðurgötu 14 og fjölgun búsetukjarna. Þá hef ég hef einnig beitt mér sérstaklega fyrir því að hagkvæmni sé gætt í útboðum á verkefnum á vegum sveitarfélagsins með góðum árangri. Ég hef verið fulltrúi Hafnarfjarðar í stjórn Strætó á líðandi kjörtímabili.

Ég fékk réttindi sem viðurkenndur bókari árið 2019 og lauk áður prófi í rekstri og viðskiptum á vegum EHI. Ég rak um árabil eigið fyrirtæki á verktakamarkaði og starfaði í framhaldi fyrir erlent fyrirtæki á byggingamarkaði í nokkur ár. Auk starfa minna sem kjörinn fulltrúi starfa ég sem bókari í hlutastarfi og frá árinu 2013 hef ég sinnt trúnaðarstörfum sem stjórnarmaður í stjórn VR og frá árinu 2019 hef ég verið fulltrúi VR í stjórn Lífeyrisjóðs verslunarmanna,” segir Helga í tilkynningunni.

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2