fbpx
Fimmtudagur, júlí 18, 2024
HeimFréttirHjördís Helga varð önnur í Kumite á Reykjavíkurleikunum

Hjördís Helga varð önnur í Kumite á Reykjavíkurleikunum

Annar Hafnfirðingur, Ronja Halldórsdóttir, varð í þriðja sæti

Karatedeild Hauka átti einn keppenda á Reykjavíkurleikunum en karatekeppni Reykjavíkuleikanna var í gær sunnudag.

Hjördís Helga Ægisdóttir keppti og stóð sig glæsilega. Hún endaði í 3. sæti í Kata keppni og í 2. sæti í Kumite, sem er bardagahluti Karate. Hún tapaði viðureigninni um gullið fyrir sterkum keppanda frá Skotlandi.

Í þriðja sæti í Kumite varð Hafnfirðingurinn Ronja Halldórsdóttir. Hún varð einnig í öðru sæti í Kata og deildi 3. sæti í senior flokki í Kata

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2