fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirHlé verði gert á öllu íþrótta- og æskulýðsstarfi barna og ungmenna sem...

Hlé verði gert á öllu íþrótta- og æskulýðsstarfi barna og ungmenna sem felur í sér blöndun hópa

Gildi jafn lengi og takmarkanir á skólastarfi

Heilbrigðisráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneyti mælast til þess að hlé verði gert á öllu íþrótta- og æskulýðsstarfi barna og ungmenna, sem felur í sér blöndun hópa, nálægð við aðra og snertingu, þar til takmörkun skólastarfs lýkur.

Eru skipuleggjendur þess hvattir til að halda uppi félagsstarfi með því að nýta sér tæknina til að halda utan um sína hópa og vera í sambandi við iðkendur og hvetja þá til virkni og hreyfingar eftir því sem við á.

Enn fremur er þeim tilmælum beint til ábyrgðaraðila og skipuleggjenda annars íþrótta- og æskulýðsstarfs að með sama hætti verði gert hlé á starfi sem felur í sér snertingu eða nálægð milli iðkenda sem er minni en 2 metrar, í samræmi við þær meginreglur sem fram koma í auglýsingu um takmörkun á samkomum og á meðan þær takmarkanir eru í gildi.

Leiðbeinandi viðmið um æskulýðs- og íþróttastarf

Heilbrigðisráðuneytið hefur í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið tekið saman leiðbeinandi viðmið um hvernig beri að túlka auglýsingar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar þegar kemur að íþrótta og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna. Leiðbeiningarnar eru eftirfarandi:

Kennsla í leik- og grunnskólum fer nú fram í litlum hópum og leitast er við að ekki verði blöndum milli þessara hópa til að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins. Samkvæmt auglýsingu um takmörkun á skólastarfi gilda sömu reglur um íþrótta- og æskulýðsstarf barna en ljóst er að ekki er unnt að halda þar sömu hópaskiptingu og í skólum og því óhjákvæmilegt að nemendur munu blandast í íþrótta- og æskulýðsstarfsemi sem stefnt gæti markmiðum sóttvarnarráðstafananna í tvísýnu.

Samkvæmt auglýsingu um takmörkun á skólastarfi gildir um íþrótta- og æskulýðsstarf ungmenna á framhaldsskólaaldri almennt sama regla og um framhaldsskóla, þ.e. að það fer ekki fram nema með fjarkennslu ef unnt er. Um skipulagt íþróttastarf fullorðinna gildir auglýsing um takmörkun á samkomum þannig að heimilt hefur verið að halda því áfram að því marki að ekki séu fleiri en 100 þar samankomnir og að almennt sé unnt að hafa um 2 metra á milli einstaklinga. Ljóst er þó að ekki er unnt að halda þeirri fjarlægð á milli einstaklinga í fjölda íþróttagreina.

„Sóttvarnalæknir vill árétta að í auglýsingum heilbrigðisráðherra um samkomubann og um takmarkanir á skólastarfi er fjallað um að nálægð einstaklinga verði ekki minni en tveir metrar ef því er við komið.

Einnig er ljóst að með vísan í leiðbeiningar um almennar sóttvarnaráðstafanir t.d. varðandi hreinlæti og smitleiðir að sameiginleg notkun á hverskonar búnaði til íþróttaiðkunar boltum, dýnum, rimlum, handlóðum, skíðalyftum og margs fleira án góðrar sótthreinsunar á milli notkunar einstaklinga er mjög varasöm og ekki í anda fyrirmæla um sóttvarnir.

Því er augljóst að í flestum íþróttum er nánast ómögulegt að æfa eða keppa.
Sóttvarnalæknir vill beina því til Íþrótta- og ólympíusambands Íslands að, líkt og gert hefur varðandi börn og ungmenni, að tekið verði hlé í æfingum og keppnum á vegum sambandsins og aðildarfélaga þeirra á meðan samkomubann varir.“

Yfirvöld benda á heimasíðuna COVID.is, þar sem finna má svör við ýmsum spurningum um m.a. skólahald og viðburði.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2