Hamraneslínur eru 220 kV háspennulínur sem liggja á milli tengivirkja Landsnets í Hamranesi og á Geithálsi.
Vegna skipulags á nýrri byggð við Ásvallabraut þarf að færa línurnar í jörð á kafla næst Hamranesi.
Tveir jarðstrengir verða lagðir á um 4 km leið, frá tengivirkinu í Hamranesi og til austurs með Hvaleyrarvatnsvegi á stuttum kafla og eftir núverandi línuslóðum um Bleiksteinsháls og Vatnshlíð ofan Hvaleyrarvatns og endar í nýju strengendavirki sem reist verður vestan Kaldárselsvegar.
Strengirnir koma í stað núverandi loftlínu sem liggur með Ásvallabraut og verður hún fjarlægð í verklok.
Auk framkvæmda við lagningu strengsins þarf að gera minniháttar breytingar/styrkingar á núverandi möstrum á loftlínunni í Gráhelluhrauni.
Verklok eru áætluð 15. nóvember 2024 og yfirborðsfrágangi verður lokið vorið 2025. Verktaki er D. Ing og eftirlitsaðili er Verkís.
Göngu- og hjólastígum haldið opnum
Á framkvæmdasvæðinu verður göngu- og hjólastígum haldið opnum en reiðstígar lokaðir. Opnir skurðir verða brúaðir og leiðir merktar, engu að síður þarf að sýna aðgát vegna umferðar véla og tækja á framkvæmdasvæðinu.
Meðfylgjandi eru myndir sem sýna verksvæðið og skýra fyrirhugaðar framkvæmdir.