fbpx
Þriðjudagur, janúar 21, 2025
HeimFréttirHöggmyndin „Gegnum hljóðmúrinn“ hefur verið flutt úr Reykjavík á Flugvelli

Höggmyndin „Gegnum hljóðmúrinn“ hefur verið flutt úr Reykjavík á Flugvelli

Nú styttist í að Icelandair flytji úr Vatnsmýrinni til Hafnarfjarðar og einn hluti af þeim flutningum var að flytja höggmyndina „Gegnum hljóðmúrinn“ eftir Ásmund Sveinsson á Flugvelli.

Hefur verkinu verið komið fyrir framan við nýju höfuðstöðvarinnar við Flugvelli og blasir því við öllum sem aka Ásvallabrautina inn á Velli. Þar er allt á fullu við lóðafrágang og virðist mikill metnaður vera lagður í hann.

Þetta er þriðja höggmyndin eftir Ásmund sem sett er upp utandyra í Hafnarfirði. Hinar tvær eru „Yngsti fiskimaðurinn“ í tjörninni í Hellisgerði og „Dýrkun“ við Sólvang.

Ásmundur gerði verkið „Gegnum hljóðmúrinn“ í Reykjavík árið 1952 úr koparþynnum. Árið 1966 var myndin stækkuð í 4 m og komið fyrir utan við Hótel Loftleiðir eins og það hét þá.

Listaverkið „Gegnum hljóðmúrinn“ þar sem það stóð við það sem áður hét Hótel Loftleiðir.

Í lýsingu á verkinu segir á vef Listasafns Reykjavíkur: „Í þessu verki hefur Ásmundur sagt skilið við hlutveruleikann. Myndin er ekki af ákveðnum hlut heldur tjáir hún einvörðungu hugmynd um kraft og hraða. Þetta er innri sýn listamannsins, sem þó hefur vísun í samtímann, tengist hugmyndum um flugið, tæknina og geimöldina sem á þessum tíma var að opna manninum nýjar og áður óþekktar víddir í tilverunni. En þó að Ásmundur hafi yfirgefið það myndmál sem líkir beint eftir veruleikanum má segja að verkið og nafn þess gefi í skyn ákveðið umhverfi og ástand. Formrænt skiptist myndin í hringform utan um fleyg. Í hringforminu virðist listamaðurinn leita eftir formleysi (sem er afar erfitt í höggmynd) og hefur það því allar forsendur til að vera ský. Og það sem undirstrikar hið mjúka eðli hringformsins er fleygurinn sem gengur í gegnum það, oddhvass og harður. Þetta er vel skilgreinanlegt form, sem klýfur hringformið og getur því fyllilega staðið fyrir flugvél eða eldflaug. Ásmundur sagði í blaðaviðtali að hann hefði fengið hugmyndina að verkinu er hann ferðaðist í fyrsta sinn í flugvél. Þó að verkið fjalli ekki beinlínis um þá flugferð (myndin hét í fyrstu Skýjaklýfir) er víst að hugsýn listamannsins styðst við hlutlæga sviðsetningu.“

Þetta er fyrsta stóra útilistaverkið í Vallahverfinu.

Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir í samtali við Fjarðarfréttir að flutningar úr Vatnsmýrinn muni hefjast í nóvember ef allt gangi eftir og stefnt sé að því að allt starfsfólk verði flutt í nýja húsið fyrir jól.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2