fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimFréttirHS veitur gerir samning við Kolvið og Lions um kolefnisjöfnun

HS veitur gerir samning við Kolvið og Lions um kolefnisjöfnun

HS Veitnur, Kolviður og Lionsklúbbur Keflavíkur undirrituðu í gær þríhliða samning um kolefnisjöfnun útblásturs CO² frá bifreiðum HS veitna. Reiknaður útblástur CO2 frá bifreiðum fyrirtækisins nam 141,7 tonnum árið 2021.

Lionsklúbbur Keflavíkur í samstafi við Kolvið mun gróðursetja plöntur og halda utan um kolefnisjöfnun fyrirtækisins.

Við þetta tækifæri sagði Júlíus Jónsson forstjóri HS Veitna:

„Það er stefna fyrirtækisins að ganga vel um í hvívetna. Liður í því er að minnka kolefnisspor fyrirtækisins eins og hægt er. Fyrirtækið er á góðri leið með að skipta yfir í umhverfisvænni orkugjafa í bílaflota fyrirtækisins og er stefnan að ná því takmarki á allra næstu árum eftir því hvernig þróun rafbíla af öllum gerðum gengur. Þangað til gróðursetjum við tré til mótvægis,“ sagði Júlíus Jónsson forstjóri HS veitna við undirritunina.

„Þetta þríhliða samstarf í loftslagsmálum er einkar skemmtilegt þar sem Lionsklúbbur Keflavíkur hafði frumkvæðið að því að koma á tengslum milli Kolviðar og HS Veitna með það að markmiði að binda losun útblásturs bifreiða HS Veitna. Kolviður mun á þessu ári planta 1.420 trjáplöntum sem fá það hlutverk að binda þessa losun. Kolviður vinnur nú að því að fá alþjóðlega ISO vottun á starfsemi sinni á þessu ári,“ sagði Reynir Kristinsson frá Kolvið við undirritunina.

„Lionsklúbbur Keflavíkur er sérstaklega stoltur af því að hafa hvatt HS Veitur til samfélagslegrar ábyrgðar með bindingu kolefnislosunar sinnar í samvinnu við Kolvið. Þessi merkilega samningur er í anda eins af fimm átaksverkefna Lions International og gerir hann okkur ekki eingöngu kleift að halda áfram áralangri trjáræktarsögu okkar heldur einnig að styðja áfram góð málefni á svæðinu,“ sagði Rafn Benediktsson formaður Lionsklúbbs Keflavíkur.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2