fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirÍbúar á Reykjanesskaganum þurfa að búa sig undir snarpan jarðskjálfta

Íbúar á Reykjanesskaganum þurfa að búa sig undir snarpan jarðskjálfta

Átta þúsund skjálftar síðan í lok janúar á Reykjanesskaganum

Jarðvísindamenn í Vísindaráði Almannavarna hittust á fjarfundi miðvikudaginn 8. apríl og fóru yfir stöðu mála vegna landriss og jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaganum. Fundinn sátu vísindamenn frá Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnun Háskólans og ÍSOR, ásamt fulltrúum frá Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, Isavia-ANS og lögreglunni á Suðurnesjum.

Landris mælist enn á Reykjanesi með miðju vestan við Þorbjörn. Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Samtals nemur landrisið um 10 sm frá því í lok janúar á þessu ári. Líkön af kvikuinnskoti gefa til kynna sillu á 3-4 km dýpi sem framkallar umtalsverða jarðskjálftavirkni á stóru svæði norðan við Grindavík. Engin merki eru um að kvikan sé að færast nær yfirborði.

Nýtt kvikuinnskot vestast á Reykjanesskaganum

GPS mælingar ásamt nánari úrvinnslu og líkanreikningum á fyrirliggjandi gögnum, gefa nú vísbendingar um nýtt kvikuinnskot vestast á Reykjanesskaganum undir Rauðhólum og Sýrfelli. Þetta staðfesta gögn sem safnað hefur verið í samstarfi Jarðvísindastofnunar Háskólans, ÍSOR, HS-orku og Veðurstofunnar eftir að virknin við Þorbjörn hófst. Þenslan vegna kvikuinnskotsins mælist frá því um miðjan febrúar og fram í fyrstu vikuna í mars. Þessi mynd skýrðist betur þegar unnið var úr GPS mælingum Háskólans, sem ekki eru beintengdar vöktunarkerfinu.  Líkan staðsetur kvikuinnskotið á um 8-13 km dýpi, sem er líklega við botn jarðskorpunnar á talsvert meira dýpi en kvikuinnskotin tvö við Þorbjörn. Á sama tíma mældist jarðskjálftavirkni á svipuðum slóðum, líklega til marks um sprennubreytingar í jarðskorpunni í kring.

Nýtt kvikuinnskot hefur mælst undir Rauðhólum og Sýrfelli sem er aðeins 1-2 km frá Reyukjanesvirkjun- Kort: Landmælingar Íslands

Í þessum atburðum telja vísindamenn því að þrjú innskot hafi orðið á árinu. Fyrsta innskotið varð 21. janúar til 1. febrúar, silla vestan við Þorbjörn á um 4 km dýpi. Frá 15. febrúar  til 7. mars varð innskot vestast á Reykjanesskaganum, en líklega er þeirri þenslu lokið í bili. Frá 6. mars til dagsins í dag er önnur rishrina í gangi vestan við Þorbjörn. Líkönin sýna sillu á um 3,5 km dýpi og um helmingi hægari rishraða en í fyrri hrinunni.

Mesta hrina sem mælst hefur á Reykjanesskaganum frá upphafi

Jarðskjálftavirkni er enn mikil þó að dregið hafi úr stærri skjálftum á Reykjanesskaganum. Náttúruvársérfræðingar Veðurstofu Íslands hafa yfirfarið ríflega 8.000 skjálfta á og við Skagann síðan í lok janúar. Þetta er mesta hrina sem mælst hefur á Reykjanesskaganum frá upphafi. Mest er virknin norðan Grindavíkur en undanfarið hefur mikil virkni mælst á stóru svæði milli Eldeyjar til Krýsuvíkur.

Á síðustu öld mældist veruleg virkni víða á Reykjanesskaganum á árunum 1927-1955 og 1967-1977. Snemma á þessum virknitímabilum urðu jarðskjálftar við Brennisteinsfjöll, þ.e. M6.3 árið 1929 og svo M 6.0 árið 1968, sem eru stærstu skjálftar sem mælst hafa í grennd við höfuðborgarsvæðið. Skjálftar af þessari stærð geta valdið tjóni á Reykjavíkursvæðinu.

Íbúar á Reykjanesskaga þurfa að búa sig undir snarpa skjálfta

„Saga jarðskjálftavirkninnar á Reykjanesskaganum sýnir að snarpir skjálftar hafa orðið í tengslum við meiriháttar jarðskjálftahrinur eins og við erum að sjá nú. Þess vegna má segja að líkur á skjálfta sem myndi finnast mjög vel á Höfuðborgarsvæðinu hafi aukist“, segir Kristín Jónsdóttir hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands. Kristín tekur þó fram að það er erfitt að segja hvenær slíkur skjálfti ríður yfir, en miðað við söguna þá þurfa íbúar á Reykjanesskaganum að búa sig undir slíkan skjálfta.

Kvikuinnskotin hafa orðið innan svæðisins sem merkt er með gulu. – Kort: Landmælingar Íslands.

Mikilvægt að huga að vörnum og viðbúnaði vegna jarðskjálfta

Langflest hús á Íslandi er byggð þannig að þau eigi að standast þá skjálfta sem líkur eru á að hér geti orðið.  Lausir munir, hillur, skápar o.s.frv.geta farið af stað og valdið hættu ef ekki er rétt frá þeim gengið.  Því þarf reglulega að huga að forvörnum vegna jarðskjálfta.  Besta leiðin til þess að koma í veg fyrir tjón eða líkamsmeiðsl er að ganga vel frá húsgögnum og öðrum innanstokksmunum þannig að þau falli ekki ef jarðskjálfti ríður yfir.  Áhrif jarðskjálfta, í hrinu eins og þeirri sem nú gengur yfir, getur gætt á öllum Reykjanesskaga, og er þá höfuðborgarsvæðið ekki undanskilið.

Upplýsingar um forvarnir og viðbrögð vegna jarðskjálfta má finna á heimasíðu almannavarna.

Heimild: Veðurstofa Íslands

 

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2