fbpx
Mánudagur, júlí 15, 2024
HeimFréttirIðnaður víkur fyrir íbúðum og þjónusturýmum

Iðnaður víkur fyrir íbúðum og þjónusturýmum

Hafnarfjarðarbær hefur gert samning við lóðarhafa á Hvaleyrarbraut 26-30 um að þar verði byggð blönduð byggð íbúða og húsnæðis undir þjónustustarfsemi.

Segir í samningunum að á undanförnum árum hafi Hafnarfjarðarbæ borist fyrirspurnir frá lóðarleiguhöfum við Hvaleyrarbraut 26-30 um hvort mögulegt sé að breyta nýtingu lóðanna og byggja á þeim blandaða byggð íbúða og þjónustustarfsemi.

Bæjarstjórn samþykkti samningana á fundi sínum 19. júní sl.

Frá undirritun samkomulagsins. Frá vinstri: Bergþór Jóhannsson og Jóhann Bergþórsson frá Hagtak ehf. og Verkfræðistofu Jóhanns G. Bergþórssonar ehf., Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri, Óttar Arnalds Hjálmar R. Hafsteinsson, frá Fjarðarmótum ehf.. – Aðsend mynd.

Breyting nær til Hvaleyrarbrautar 20-32

Þessu til samræmis ákvað Hafnarfjarðarbær að breyta aðalskipulagi bæjarins 2013-2025 og var breytingin samþykkt í bæjarstjórn 31. ágúst 2022 og af Skipulagsstofnun 13. janúar 2023. Í greinargerð með breytingunni segir að hún nái til landsvæðis lóðanna Hvaleyrarbrautar 20-32.

Er tekið fram að með breytingunni víki iðnaðarbyggingar fyrir breyttri starfsemi með auknu þjónustustigi á lóðum í samráði við lóðarhafa, en á svæðinu verði miðsvæðisstarfsemi með áherslu á verslun og þjónustu og heimild fyrir íbúðir á efri hæðum.

Breyta þarf gildandi deiliskipulagi en alls hefur gildandi deiliskipulagi þegar verið breytt 49 sinnum!

Lóðarhafar

Lóðarhafar á Hvaleyrarbraut 26 er Fjarðarmót ehf. þar sem stærsti eigandinn er Hjálmar Hafsteinsson með 17,7% hlut og Benedikt Steingrímsson, Óttar Arnaldsson og fl. með 15% hlut hver.

Lóðarhafar á Hvaleyrarbraut 28 og 30 eru Verkfræðiþjónusta Jóhanns G. Bergþórssonar ehf. og Hagtak ehf. sem er til helminga í eigu fyrrgreindrar verkfræðiþjónustu og Jóhanns G. Bergþórssonar. Verkfræðiþjónustan er í eigu Jóhanns og fjölskyldu.

Úr tillögum arkitekta sem sýnir tillögur að hæðum og staðsetningu á lóð. Lóð Björgunarsveitar Hafnarfjarðar er nr. 32.

Hvaleyrarbraut 26

Úr tillögum arkitekta sem sýnir mögulegt útlit.

Umfang uppbyggingar á lóðinni Hvaleyrarbraut 26 skal miðast við að á lóðinni verði fjölbýlishús með að hámarki 45 íbúðum auk húsnæðis undir verslunar- og þjónustustarfsemi. Gert er ráð fyrir að byggingarmagn á lóðinni samkvæmt deiliskipulagi verði 4.820 fermetrar íbúðarhúsnæði, 330 fermetrar atvinnuhúsnæði, 2.250 fermetrar bílakjallari og 270 fermetrar geymslur. Gert er ráð fyrir 66 bílastæðum í kjallara og 23 bílastæðum ofanjarðar.

Svona mátti sjá fyrirsögn samnings fyrir Hvaleyrarbraut 26 eins og hann var birtur í fundargerð bæjarstjórnar.
Úr tillögum arkitekta sem sýnir mögulegt útlit frá Lónsbraut.

Hvaleyrarbraut 28 og 30

Umfang uppbyggingar á lóðinni Hvaleyrarbraut 28 miðast við að á lóðinni verði byggt fjölbýlishús með að hámarki 41 íbúð auk húsnæðis undir verslunar- og þjónustustarfsemi. Er þar með tekið tillit til þess að þeir fermetrar er ætlaðir voru til gerðar gangstígs í gegnum svæðið falli undir lóð nr. 28. Gert er ráð fyrir að byggingarmagn á lóðinni samkvæmt deiliskipulagi verði 4.390 fermetrar íbúðarhúsnæði, 330 fermetrar atvinnuhúsnæði, 2.040 fermetrar bílakjallari og 270 fermetrar geymslur. Gert er ráð fyrir 64 bílastæðum í kjallara og 23 bílastæðum ofanjarðar.

Umfang uppbyggingar á lóðinni Hvaleyrarbraut 30 miðast við að á lóðinni verði byggt fjölbýlishús með að hámarki 58 íbúðum auk húsnæðis undir verslunar- og þjónustustarfsemi. Gert er ráð fyrir að byggingarmagn á lóðinni samkvæmt deiliskipulagi verði 7.000 fermetrar íbúðarhúsnæði, 545 fermetrar atvinnuhúsnæði, 2.900 fermetrar bílakjallari og 408 fermetrar geymslur. Gert er ráð fyrir 70 bílastæðum í kjallara og 28 bílastæðum ofanjarðar.

Úr tillögum arkitekta sem sýnir mögulegt útlit frá Hvaleyrarbraut.

Hámark 3 hæðir frá götuhæð Hvaleyrarbrautar

Gert er ráð fyrir að húsin verð að hámarki 3 hæðir frá götuhæð Hvaleyrarbrautar en að jarðhæð sem snýr að Lónsbraut verði með um 4 metra lofthæð. Hámarks nýtingarhlutfall á lóðunum er 1,6 skv. tillögunum en er skv. gildandi deiliskipulagi 0,4 á nr. 26 go 1,6 á nr. 28 og 30.

Úr tillögum arkitekta sem sýnir mögulegt útlit.

Þó er í tillögum arkitekta gert ráð fyrir allt að 6 hæðum sem væru þá skv. teikningum um 4,5 hæð yfir Hvaleyrarbraut.

Úr tillögum arkitekta sem sýnir mögulegt útlit.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2