fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirÍslendingar og fólk búsett á Íslandi þarf að fara í sóttkví við...

Íslendingar og fólk búsett á Íslandi þarf að fara í sóttkví við komu til Íslands

Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að útvíkka enn frekar hááhættusvæðin vegna COVID-19.

Frá og með morgundeginum er Íslendingum og öðrum með búsetu á Íslandi og koma til landsins skylt að fara í tveggja vikna sóttkví án tillits til hvaðan þeir eru að koma.

Undanþegnir þessu er flugáhafnir og áhafnir flutningaskipa.

SÓTTKVÍ, HVERNIG VIRKAR HÚN?

  • Þú þarft að fara í sóttkví þegar þú hefur mögulega smitast en upplifir engin einkenni

    Þú gætir hafa smitast ef þú

    • hefur verið á ferðalagi á skilgreindum áhættusvæðumeða hefur umgengist fólk sem svo greinist með COVID-19
    • Aðrir á þínu heimili sem voru útsettir fyrir smiti á sama tíma geta verið samtímis í sóttkví á sama stað. Mikilvægt er að fylgja leiðbeiningum um sóttkví á heimilinu.

Ef aðrir á heimilinu fara í sóttkví en ekki þú?

Ef einhver á heimilinu hefur verið útsett(ur) fyrir smiti og fer í sóttkví heima en ekki þú, er æskilegt að þú sért ekki á sama stað. Ef þú vilt ekki eða getur ekki farið af heimilinu er nauðsynlegt að takmarka snertingu eins og þú getur við þann sem er í sóttkví.

Sóttkví vegna COVID-19 eru 14 dagar frá síðasta mögulega smiti eða þar til einkenni koma fram. Ef þú ferð að upplifa einkenni og sýking er staðfest í kjölfarið þarf að fara eftir leiðbeiningum um einangrun í heimahúsi.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2