Ísold Marín Haraldsdóttir, 19 ára Hafnfirðingur, er Þrautakóngur Ratleiks Hafnarfjarðar 2022 en hún var ein þeirra 139 sem fundu alla 27 ratleiksstaðina sem dreift var vítt og breytt um uppland Hafnarfjarðar. Aldrei fyrr í 26 ára sögur Ratleiksins hafa svona margir klárað allan leikinn.
Leikurinn hófst í byrjun júní og stóð til 26. september. 27 ratleiksmerkjum er komið fyrir, sumum í eða við byggðina í Hafnarfirði en flestum þó í víðfeðmu upplandi bæjarins og jafnvel út fyrir það. Prentað var vandað loftmyndakort þar sem götur og gönguslóðar eru merktar inn á og staðsetning ratleiksmerkjanna. Þátttakendur hafa svo það verkefni að finna bestu leiðina að merkjunum og stundum þarf nokkrar tilraunir til að finna merkin. Kortin lágu frammi víða í bænum en lang flest kortin voru sótt í Fjarðarkaup.
Sex þúsund sinnum komið að ratleiksstað í sumar!
Þátttakendur er af öllum aldri og þetta er vinsæll fjölskylduleikur. Markmið leiksins er að hvetja fólk til að njóta upplands Hafnarfjarðar en leikurinn er gefinn út af Hönnunarhúsinu í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ. Árangurinn er svo sannarlega góður því áætla má að um sex þúsund sinnum hafi verið komið á ratleiksstaði í sumar og er það jafnvel vanmetið því svo margir skila ekki inn úrlausnum þó þeir taki þátt og fjölmargir koma með sem gestir í einstaka leitir að merkjum.
Þátttakendur koma víða að, þó mest úr Hafnarfirði, en sífellt fleiri úr nágrannasveitarfélögunum taka þátt. Þema leiksins í ár var fornar þjóðleiðir, götur og stígar.
Fjölmargir styrktaraðilar
Í ár er Rio Tinto á Íslandi aðalstyrktaraðili leiksins auk Hafnarfjarðarbæjar sem er samstarfsaðili um útgáfu leiksins. Fjölmörg önnur fyrirtæki styrkja leikinn m.a. með því að gefa vinninga.
Fjallakofinn gaf aðalvinningana í ár, gönguskó fyrir verðlaunahafa í öllum þremur flokkunum, Þrautakóngur – 27 merki, Göngugarpur – 18 merki og Léttfeti – 9 merki. Að auki fengu tveir í hverjum flokki viðurkenningu, einn í hverjum flokki fékk sundkort frá Sundlaugum Hafnarfjarðar, og hinir fengu Gjafakort frá Fjarðarkaupum, máltíð fyrir tvo á Von og gjafabréf frá Altis.
Ómar Smári Ármannsson, sem heldur úti fróðleikssíðunni Ferlir.is, veitti ómetanlega aðstoð við gerð leiksins sem fyrr.
Þá voru veitt samtals 26 útdráttarverðlaun en þau voru gefin af Sundlaugum Hafnarfjarðar, Altis, Von, Burger-inn, Píluklúbbnum, Ban kúnn, Tilverunni, Rif, Krydd, Músik og sport, Gróðrarstöðinni Þöll og Gormur.is Þá styrktu Landsnet, HS-veitur og H-berg leikinn.
125 mættu á uppskeruhátíðina
Alls mættu 125 á uppskeruhátíð Ratleiks Hafnarfjarðar, sem haldin var í Apótekinu í Hafnarborg sl. fimmtudag. Aldrei hafa svo margir mætt áður og var húsnæðið troðfullt og þurftu margir að standa. Þar var farið yfir leikinn, myndir sýndar og verðlaun veitt. Var greinileg ánægja með leikinn og fólk strax farið að hlakka til næsta árs. Hafði fólk orð á því að þrátt fyrir að hafa margoft tekið þátt væri það alltaf að upplifa og sjá eitthvað nýtt í okkar fallega upplandi.
Þetta var 25. ratleikurinn á 26 árum en Guðni Gíslason hafði umsjón með honum og lagði í 15. Sinn.
Þrautakóngur Ratleiks Hafnarfjarðar 2022
- Ísold Marín Haraldsdóttir (19), Álfaskeiði 113
- Finnbjörn Þorvaldsson (40), Breiðvangi 11
- Rúna Björk Júlíusdóttir (45), Breiðvangi 13
Göngugarpur Ratleiks Hafnarfjarðar 2022
- Kolfinna Magnúsdóttir (58), Norðurbakka 25C
- Jónína Ágústsdóttir (74), Klukkuholti 2, Álftanesi
- Elín Ósk Sigurðardóttir (47), Túnhvammi 15
Léttfeti Ratleiks Hafnarfjarðar 2022
- Hilmir Kári Jónsson (10), Vesturvangi 42
- Hávarður Örn Hávarðarson (51), Norðurbakka 23
- Einar S. Sigurðsson (42), Dvergholti 7
Eftirtaldir fengu útdráttarverðlaun
- Aðalheiður Helgadóttir
- Aldís Sigurðardóttir
- Andri Fannar Guðmundsson
- Ásdís Ingólfsdóttir
- Ásta Eyjólfsdóttir
- Berglind Hulda Jónsdóttir
- Einar Ólafsson
- Elín Henriksen
- Friðfinnur Gestsson
- Guðmundur Rúnar Ólafsson
- Hallgrímur Guðmundsson
- Helga Björnsdóttir
- Hreiðar Gíslason
- Inga Þóra Ásdísardóttir
- Katrín Líney Jónsdóttir
- Katrín Líney Jónsdóttir
- Lilja Sólrún Guðmundsdóttir
- María Kristbjörg Ásmundsdóttir
- Nonita Pintor
- Sigríður Ágústsdóttir
- Sigríður Karlsdóttir
- Sigurður Jóhannsson
- Steinarr Steinarsson
- Steinunn M. Þórketilsdóttir
- Þórður Pálsson
- Örvar Jóhannesson
Sjá má nánar um Ratleik Hafnarfjarðar á ratleikur.fjardarfrettir.is og á Facebook