KL. 13.44 í dag varð jarðskjálfti 2,7 km austur af Fagradalsfjalli og skv. upplýsingum Veðurstofunnar var hann á 7,3 km dýpi og var 3,7 á Richterskala.
Fjölmargir skjálftar hafa verið á þessu svæði undanfarið en þetta var stærsti skjálftinn á landinu síðasta sólarhring.
Fannst skjálftinn greinilega í Hafnarfirði.