fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirKlaus sundþjálfari sem gestur á Ólympíuleikunum

Klaus sundþjálfari sem gestur á Ólympíuleikunum

Sundfólkið fékk ekki þjálfara með sér eins og flestir aðrir

Keppnishöllin.
Keppnishöllin.

Klaus Jürgen Ohk, sundþjálfari SH og þar með þjálfari Hrafnhildar Lúthersdóttur aðstoðar Hrafnhildi sem gestaþjálfari eins og hann orðar það sjálfur. Hann hefur því ekki stöðu hefðbundins þjálfara á leikunum og er ekki í sendisveit Íslands. Hann er þar í boði Hrafnhildar en hann mun einnig aðstoða Anton Svein eftir megni. Bæði eru þau uppalin í SH en Anton Sveinn flutti sig yfir til Ægis þegar umrót voru í þjálfaramálum hjá SH.

Hvorugt þeirra fengu sinn þjálfara með sér eins og flestir hinir íslensku keppendurnir á leikunum. Klaus segir að Hrafnhildur hafi boðið honum að koma með sér á leikana en hann sé þar opinberlega í boði Sundsambands Íslands sem greiðir allan kostnað við veru hans þar. Jacky Pellerin landsliðsþjálfari og sundþjálfari hjá Ægi aðstoða Anton Svein og Eygló Ósk Gústafsdóttur.

Klaus segir í samtali við Fjarðarfréttir að þau séu bæði í mjög góðu formi en Klaus sat við keppnislaugina og beið eftir sundfókinu þegar Fjarðarfréttir náði tali af honum undir miðnætti á íslenskum tíma.

Anton keppir á laugardaginn og Hrafnhildur á sunnudaginn.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2