fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirKolefnishlutleysi árið 2035 skv. loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið

Kolefnishlutleysi árið 2035 skv. loftslagsstefnu fyrir höfuðborgarsvæðið

Borgarstjóri og bæjarstjórar sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu formlega loftlagsstefnu höfuðborgarsvæðisins 11. ágúst sl.

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vilja með stefnunni leggja sitt að mörkum með innleiðingu markvissra aðgerða sem stuðla að kolefnishlutleysi höfuðborgarsvæðisins. Mikilvægasta afurð stefnunnar er því yfirlit aðgerða sem eru líklegar til að skila árangri í baráttunni við loftslagsbreytingar. Aðgerðirnar snúa m.a. að vegasamgöngum, siglingum, staðbundinni orkunotkun, iðnaði, efnanotkun, úrgangsmálum og landnoktkun.

Í tengslum við stefnuna undirritaði SSH samkomulag við umhverfis-, orku- og auðlindaráðuneytið í þeim tilgangi að fylgja loftslagsstefnunni eftir, m.a. með ráðningu ráðgjafa til þess að aðstoða sveitarfélögin við að móta aðgerðir innan eigin marka, til samræmis við fyrrgreinda verkfærakistu loftslagsstefnu höfuðborgarsvæðisins. Þá verður unnið nýtt mat á losun gróðurhúsalofttegunda og bindingar kolefnis á höfuðborgarsvæðinu fyrir árið 2023. Losun var síðast metin árið 2019 og er tilgangur nýrrar útektar sá að fylgjast með einstökum losunar- og bindingarþáttum og meta árangur aðgerða. Hefur SSH gert samning við VSÓ ráðgjöf til að sinna ofangreinum verkþáttum.

Loftslagsstefna höfuðborgarsvæðisins er áhersluverkefni Sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins 2020-2024 og eru verkefnin fjármögnuð með framlagi ríkisins, einstakra ráðuneyta og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.

Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH, segir þetta stóran áfanga í samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, sem mynda eitt búsetu- og atvinnusvæði, að sameiginleg stefna í loftslagsmálum liggi fyrir. „Það er sameiginleg ábyrgð sveitarfélaga á svæðinu að stuðla að því að dregið verði úr losun gróðurhúsalofttegunda en á sama tíma sé innleiðing stefnunnar á ábyrgð hvers sveitarfélags fyrir sig til samræmis við staðbundnar aðstæður. Jafnframt séu verkefni unnin á sameiginlegum vettvangi, s.s. þegar kemur að samgöngu- og úrgangsmálum.“

Ítarefni

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2