fbpx
Miðvikudagur, júlí 17, 2024
HeimFréttirKom með 17 m langreyði á perustefninu í höfn

Kom með 17 m langreyði á perustefninu í höfn

Þegar malarflutningaskipið Nordfjord kom að Hvaleyrarbakka í Hafnarfjarðarhöfn um hádegisbil í gær, urðu hafnarstarfsmenn varir við að eitthvað torkennilegt lá utan á perustefni skipsins.  Í ljós kom að það var hvalur, sem skipið hafði siglt á úti á Faxaflóa og borið með sér á perunni alla leið í höfn.

Í fyrstu var talið um um hrefnu væri að ræða en við nánari skoðun sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar, sem eru með sínar höfuðstöðvar við hafnarbakkann í Hafnarfirði, kom í ljós að hér var langreyður á ferðinni, um 17 metra löng.

Hvalinn rak frá malarskipinu í gær undan stífri austanátt inn í grjótgarðinn þar sem flotkvíin liggur.  Erfitt var að komast að hvalnum, í bröttum grjótgarðinum,  en með aðstoð félaga úr Björgunarsveit Hafnarfjarðar tókst um miðjan dag í gær að koma tógi á hvalinn.  Stefnt er að því að draga hann úr höfninni á  morgunflóðinu í fyrramálið.  Þá munu sérfræðingur Hafrannsóknastofnunar taka sýni úr hvalnum og honum síðan sökkt á sínum fyrri heimaslóðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarhöfn.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2