fbpx
Þriðjudagur, júlí 16, 2024
HeimFréttirLægsta tilboð 308 milljónum kr. yfir kostnaðaráætlun á knatthúsi fyrir Hauka

Lægsta tilboð 308 milljónum kr. yfir kostnaðaráætlun á knatthúsi fyrir Hauka

Lægsta tilboð í 1. áfanga knatthúss Hauka er 3,4 milljarðar kr.

Nýlega voru opnuð tilboð í byggingu knatthúss Hauka að Ásvöllum.

Um miðjan júní óskaði Hafnarfjarðarbær eftir tilboðum verktaka í 1. áfanga knatthúss Hauka sem felur í sér að byggja að Ásvöllum 1 fullbúinn knattsal með tæknirýmum, uppsteyptri þjónustubyggingu og lóðafrágangi. Stærð knattsalar er 10.284 m² með fullbúnum knattspyrnuvelli í keppnisstærð ásamt hliðarsvæðum, 33 m² inntaksrými og uppsteyptri 873 m² þjónustubyggingu.

Í síðari áfanga er svo ma. innrétting á þjónustubyggingunni og tengibygging en í þá þætti er ekki boðið í núna.

Á fundi í dag afgreiðir bæjarstjórn svo svör skipulags- og byggingarráðs við athugasemdum við umhverfismatsskýrslu um uppbyggingu á íþróttasvæði Hauka en samþykkt skýrslunnar er forsenda fyrir byggingu knatthússins.

Eftirfarandi tilboð bárust:

TilboðsgjafiTilboðsverð% af áætlun
Íslenskir aðalverktakar hf.3.399.107.883 kr.110%
Stálgrindarhús ehf. í samstarfi við SG BYGG3.437.525.677 kr.121%
GG Verk ehf.3.889.484.141 kr.126%
K16 ehf.3.780.721.218 kr.122%
Flotgólf ehf.4.704.220.717 kr.152%

Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á kr. 3.091.222.162.-

Lægsta tilboðið er því 10% yfir kostnaðaráætlun og munar tæpum 308 milljónum kr. Hæsta tilboðið er 52% yfir kostnaðaráætlun og munar þar rúmum 1,6 milljarði kr.

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2