Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er að leita að Áslaugu Eik Ólafsdóttur.
Áslaug er 25 ára gömul, 161 cm á hæð, um 80 kg að þyng, með brúnt axlarsítt hár og græn augu. Síðast þegar sást til hennar var hún í gráum frakka, dökkum buxum, með svarta húfu og í hvítum og svörtum strigaskóm.
Þeir sem hafa upplýsingar um hvar hún gæti verið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444 1000 eða 112.