fbpx
Þriðjudagur, nóvember 5, 2024
target="_blank"
HeimFréttirList án landamæra - Sýning Elfu Bjarkar opnuð á laugardag

List án landamæra – Sýning Elfu Bjarkar opnuð á laugardag

Á laugardaginn, 15. október kl. 15 verður ný sýning opnuð í Sverrissal Hafnarborgar í tengslum við hátíðina List án landamæra. Heiðurslistamaður hátíðarinnar að þessu sinni, Elfa Björk Jónsdóttir, opnar einkasýninguna Gulur, dökkgrænn, fjólublár…

Elfa Björk Jónsdóttir

Á sýningunni verður að sjá ný og nýleg verk eftir Elfu Björk Jónsdóttur, jafnt málverk, teikningar og keramik. Myndheimur listakonunnar byggir á samspili hins formræna og hins fígúratífa, þar sem hún notar hreina og tæra liti og tekur áhorfandann með sér í ferðalag um framandi heima. Þá sækir hún innblástur í náttúruna við gerð verka sinna og þar koma gjarnan fyrir ýmiss konar verur og mótíf sem sum hver finnast ekki í íslenskri náttúru.

Fyrirmyndir sækir Elfa Björk ýmist úr náttúrulífsbókum eða listasögunni og færir hún gjarnan myndefnið yfir í sinn einstaka myndheim. Í sumum verkanna má jafnvel segja að við fljúgum beint inn í iður myndanna, líkt og horft sé frá sjónarhorni arnarins. Svífum við þannig inn í litahaf þar sem mynstur og ólíkar litasamsetningar umlykja okkur og gleðja augað.

Elfa Björk Jónsdóttir býr og starfar á Sólheimum í Grímsnesi og vinnur þar daglega að listsköpun sinni. Hún hefur sótt námskeið í myndlist frá unga aldri, meðal annars í málaralist, teikningu og glerlist. Á Sólheimum hefur hún aðallega notið leiðsagnar Ólafs Más Guðmundssonar, myndlistarkennara og fagstjóra listasmiðju Sólheima. Verk Elfu Bjarkar hafa meðal annars verið sýnd í Ásmundarsal, Gallerí Gróttu, Listasafni Árnesinga og í Tékklandi.

Verk eftir Elfu Björk Jónsdóttur

Ummæli

Ummæli

Tengdar greinar
- H1 -

Nýjustu greinar

H2